kruttid.bloggar.is
I Bulgariu er gott ad djamma og djusa...Guğmundur Ari Arason
...diskotekunum a :) hehe, nei annars, eg er ekkert ad djamma eda djusa, enda daldid erfitt ad djamma med fjolskyldunni. Eg er i tolvu a einhverju hoteli tar sem eg er ad fara i nudd og tad a vist ad vera himneskt, en stafirnir eru eitthvar skritnir.Buinn ad vera i viku og vika eftir. Her er sol og meira en 30 stiga hiti :)
Reyndar komu trumur og eldingar og tad rigndi i sirka 20 min en svo mikid ad tad myndudust ar a gotum.
Her eru strakarnir ekkert saetir nema teir seu fra Svidtjod, hihi
For i gamlan bae rett Sunny Beach a manudaginn. Her er allt otrulega odyrt og allir vilja selja mer eitthvad einn, tveir og nuna. A stundum erfitt med ad sofa a naeturnar, tvi tad er heitt og herna djammar folk oll kvold.
Keypti mer bol, sandala og tosku, en verid alveg roleg, eg a eftir ad kaupa mer miklu meira :D hihi
En eg kved i bili hedan fra strondinni og sol og vid sjaumst sidar kruttin min :D
Búlgaría...here I come :DGuğmundur Ari Arason
Jæja, það styttist í ferðina til Búlgaríu. Förum í fyrramálið í loftið kl 7 :)Ég er orðinn nokkuð spenntur, enda ekki oft sem ég fer til útlanda.
Verst að ég missi af gay pride....
Allavega, sjáumst eftir 2 vikur :)
Gummi hinn bleiki....og hinn glaði :)
Upplısingaflæği...Guğmundur Ari Arason
Ég hef verið eitthvað óduglegur að upplýsa almúgann um mitt líf í sumar svo að þegar ég er að segja þeim hluti sem þau eiga að vita, þá vita þau það þekki því ég hef gleymt að segja þeim og gleymt því hverjum ég hef sagt það.
Það er nú ekki hellingur, en ég er að fara til Búlgaríu þann 10.ágúst og kem aftur heim 24.ágúst og verð með mömmu, pabba og yngsta bróður. Verður gaman.
Þá vitið þið það :)
FerğasaganGuğmundur Ari Arason
Eins óspennandi og ég held að hún sé, þá ætla ég nú samt að segja frá því þegar ég skrapp norður ásamt Sjöfn og hennar kærasta.Ferðin hófst á því að keyra frá Stokkseyri norður yfir Kjöl. Gistum fyrst í gangnamannabragga við Sandá, bara við þrjú og tugi dýna sem staflað var upp sem veggur til að verja okkur frá kuldanum.
Daginn eftir héldum við áfram og þá fórum við yfir Kjöl. Stoppuðum á Hveravöllum og ég smellti af nokkrum myndum, villtumst pínuítið en fundum aftur rétta leið og keyrðum meðfram/gegnum Blöndulón í þoku. Þess vegna er ég ekki viss hvort við keyrðum meðfram eða í gegnum Blöndulón. Hélsdum svo áleiðis til Akureyrar og þaðan svo í Hljóðakletta og tjaldað þar.
Ég og tjald eigum ekki vel saman nema einhver hjálpi mér :P
Bíllinn bilaði daginn eftir (laugardag) en það er pínu okkur að kenna (Mest Sjöfn;)...) og bíllinn var meira og minna bilaður það sem eftir var af ferðinni.
Ég reyndi nú að vera jákvæður og vonaðist eftir því að sólin færi nú að láta sjá sig. Svo var ekki svo við fórum vestur og ætluðum okkur í Stykkishólm. Gistum reyndar fyrst á laugardaginn á Akureyri og héldum svo vestur daginn eftir.
Það sem var að bílnum var að rafgeymirinn var alltaf að tæmast og þess vegna reyndum við að spara rafmagn. Þegar við þurftum hita gátum við ekki notað miðstöðina og þegar það rigndi máttum við ekki nota rúðuþurrkurnar.
Við komust aldrei í Stykkishólm, heldur stoppuðum á Ketilstöðum í Hvammsfirði, en þar búa amma og afi Sjafnar. Þar fengum við að vera í tvær nætur og var það ágætt. Reyndum svo að halda ferðinni áfram en urðum að láta draga okkur í gang og fá start upp í brekku og í engu símasambandi. Sem betur fer var fólk á ferðinni.
Rétt áður en við náðum í Borgarnes dó bíllinn enn eina ferðina og við dregin í Borgarnes:)
Þá er kominn mánudagur og við jú á leiðinni heim. Urðum að bíða í Borgarnesi eftir nýum rafgeymi í 3 klukkutíma og komust loks heim um kvöldið, þreytt og pirruð vegna þess hversu pirraðir allir voru orðinir út í alla.
The end
Hvağ skal segja...Guğmundur Ari Arason
Æi mér finnst ég ekkert hafa að segja. Reyndar nenni ég yfirleitt ekki að blogga.Ég get hinsvegar sagt ykkur það að ég fór í ferðalag um daginn sem einkenndist af allavega 50% sólarleysi og biluðum bíl með pirring í eftirdragi ;)
Ég get líka sagt ykkur að loksins er sólin kominn og núna brosi ég :)
SundlaugarkommentGuğmundur Ari Arason
Um helgina vann ég endalaust en á laugardaginn grillaði ég með nokkrum krökkum. Svo helgin hefur ekki mikið að segja, fyrir utan hvað maturinn var æðislega góður. Svínakótelettur og svo ís í eftirrétt, ég var allavega afvelta :)Í þessari færslu ætlaði ég hinsvegar ekki að tala um helgina heldur að segja nokkur orð við hana Írisi.
Hún heldur því fram að ég geti bloggað um einhvern kúk í lauginni. Það get ég nefnilega ekki...:)
Ég get hinsvegar sagt ykkur frá því að þarna kemur í sund maður sem syndir eins og hvalur (hvernig sem farið er að því ;))
Þarna er lika maður sem er svo loðinn að það er skrítið að það skuli ekki koma apahljóð úr honum....
Kona nokkur sem syndir hvern einasta dag, má alls ekki bleyta hárið, og syndir því með hárið greitt voða fallegt upp úr vatninu ;)
Fólk er líka mjög frekt. Jafnvel þótt að það sé búið að loka lauginni, þá reyna samt sumir að fara ofaní pottinn á lokamínútunni...
Margir fastakúnnar eru svo næs, að þeir gefa okkur nammi eftir hverja útlandaferð eða kökur eftir afmæli og slíkt..jafnvel baka þeir bara eitthvað handa okkur því þeim langaði til þess...
....læt þetta vera nóg í bili í dag
Og já, ég fékk útborgað :D og það er ekki langt þangað til ég fer norður í smá frí :D
Nıtt blogg!!!Guğmundur Ari Arason
Þeir sem vilja nýtt blogg, hvernig væri nú að kommenta hérna á síðuna af einhverju viti svo ég sé nú ekki að blogga til einskis...;)Annars segi ég nú bara allt ágætt. Síðasta helgi var fín. Fór í bústaðinn.
Fór í Smáralind á miðvikudaginn og missti mig aðeins í snyrtivörudeildinni...;) en það er allt í lagi :)
Það er að koma önnur helgi og ég verð í endalausum veislum. Amma níræð á morgun en veislan á sunnudag. Frænka mín með útskriftarveislu á morgun í tilefni þess að hún var að klára lögfræðingin. Duglegt þetta frændfólk mitt :)
Svo ég læt ykkur vita meir síðar...bæjó í bili
Elska brúğkaupGuğmundur Ari Arason
Í gær fór ég í brúðkaup. Ooohh, þau eru svo skemmtileg :)Þetta var með því fallegasta sem ég hef nokkurn tímann séð. Hver vill giftast mér? ;)
Morgunvaktirnar eru alveg að drepa mig þessa dagana, sérstaklega vegna þess að það er ekkert að gerast í vinnunni. Laugin er næstum tóm alla vaktina. Sem betur fer er ég í fríi á morgun, svo ég get slappað af og haft það næs.
Það eru víst alltaf að bætast við myndir hjá mér, svo ef fólk hefur áhuga, gjörið svo vel :)
Nıjar myndirGuğmundur Ari Arason
Þegar ég var að nota gömlu síðuna mína þá vildi fólk endilega fá að sjá myndir frá mér, og nefndi einhver magadansmyndir. Það vill svo skemmtilega til að ég er búinn að setja inn fáeinar myndir af þessum magadans.Fínasta helgiGuğmundur Ari Arason
Fór í leikhús í gær á söngleikinn Litla Hryllingsbúðin sem er sýnd í Íslensku Óperunni af Leikfélagi Akureyrar. Þetta var í fyrsta sinn sem ég sá hana og kominn tími til, svo ég var bara nokkuð sáttur og svo er hún mjög góð og skemmtileg.Til hamingju samfylkingarmenn með þennan mikla sigur í Hafnarfirði og sömuleiðis Vinstri grænir. Næstu fjögur ár verða athyglisverð.